Haustbragur á veiðunum

Dótturfélag Síldarvinnslunnar í Vestmannaeyjum, Bergur-Huginn, gerir út togarana Vestmannaey og Bergey. Eins og undanfarin ár hafa skipin lagt stund á veiðar út af Suðausturlandi og Austfjörðum á þessum árstíma. Aflanum er svo ýmist landað fyrir austan eða í Eyjum. Arnar Richardsson, rekstrarstjóri, segir að veiðarnar hafi gengið vel síðustu vikurnar. „Það er haustbragur á veiðum skipanna og það hefur aflast vel. Vestmannaey landaði fullfermi á Seyðisfirði í gær og var uppistaða aflans þorskur og ýsa. Vestmannaey hóf veiðar í túrnum út af Suðausturlandi en færði sig svo á Austfjarðamið. Bergey er á miðunum út af Suðausturlandinu og er að veiða ýsu, kola og ufsa. Gert er ráð fyrir að hún landi í Vestmannaeyjum á morgun. Við erum kátir með veiðarnar og verðin hafa verið að þokast upp á við,“ segir Arnar.

Af vef Síldarvinnslunnar

Nýjustu fréttir

Ólöf María snýr aftur í ÍBV og gerir tveggja ára samning
Eyjasamfélagið heillaði mig strax
Milan Tomic framlengir við ÍBV
Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.