Minnisvarðinn á Skansinum afhjúpaður í dag

Rúmlega 500 nöfn frá árinu 1251

Í dag, föstudaginn 2. júní klukkan 18.00 verður afhjúpaður minnisvarði á Skansinum til minningar um drukknaða sjómenn. Sjómannadagsráð undir forystu Ríkharðs Zöega Stefánssonar stendur að minnisvarðanum. Á honum verða yfir 500 nöfn Eyjasjómanna og annarra sem drukknað hafa og nær listinn aftur á 13. öld.

Ríkharður fékk öflugan hóp í lið með sér og liggur mikil vinna að baki.  Hönnuður er Bjarki Sigurjónsson og sá Vélsmiðjan Þór um smíðina. Minnismerkið er á steyptum stöpli sem myndar vítt V. Eru þrjár plötur á hvorum helmingi, tveggja metra háar og samanlögð breidd er níu metrar. Eru þær tvöfaldar og eru nöfnin skorin út í þá fremri og lýst upp þannig að lesa má nöfnin jafnt að degi sem nóttu.

Styrktaraðilar eru: Vestmanneyjabær, Ísfélagið, Vinnslustöðin, Bjössi á Barnum minningarsjóður, Sjóvá, Frár VE, Sindri Óskarsson, Þórður Rafn Sigurðsson, fjölskylda Bergvins Oddssonar á Glófaxa, Ásdís Sævaldsdóttir, Sævald Pálsson, fjölskylda Sævalds Pálssonar, BH, Magnús Kristinsson, Sjómannafélagið Jötunn, Skipstjóra og stýrimannafélagið Verðandi, Íslandsbanki, Zamekróin, fjölskylda Guðmundar Inga Guðmundssonar á Huginn, Lífeyrissjóður Vestmannaeyja og Hafnarsjóður. Síðast en ekki síst Matthías Óskarsson á Bylgju og fjölskylda sem alltaf eru reiðubúin að leggja sjómannadagsráði lið.

Aðstoð við undirbúning og gerð minnisvarðans: Geisli, Gröfuþjónusta Hafþórs og Hermanns, Steini og Olli, Einar Birgir Einarsson og Vélsmiðjan Þór, Kári Bjarnason, Torfi Haraldsson, Sæþór Vídó grafískur hönnuður, Eiríkur Ómar Sæland, Þór Engilbertsson og Hellugerðin.

Myndatexti:

Vinnu við minnisvarðann lauk í gær en hann er í kverkinni vestan við veginn að Skansinum.

 

Nýjustu fréttir

Erlingur og Elmar með mikilvæga sigra í þýsku B-deildinni
Vikan gerð upp: Sjóslys, samgöngur og framkvæmdir settu mark sitt á vikuna
Jólasveinarnir fara í keilu á aðfangadag og dansa í kringum pálmatré
Glódís Dúna og liðsfélagar í U17 tryggðu sér sæti á EM
Hafa fundið sig vel í samfélaginu
Skipulagsvinna formlega hafin vegna hafnar við Eiðið
Sigur og tap hjá Arnari og íslensku stelpunum gegn Svíþjóð
Takmarkað dýpi hamlar siglingum um Landeyjahöfn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.