Söguganga í fótspor Tyrkjaránsmanna

Sunnudaginn 16. júlí nk. kl. 13 stendur Sögusetrið 1627 fyrir Tyrkjaránsgöngu og afhjúpun nýs söguskiltis. 

Í ár eru liðin 396 ár frá Tyrkjaráninu illræmda þegar ránsmenn frá Alsír í Norður- Afríku gengu á land í Vestmannaeyjum, drápu, særðu, rupluðu og tóku til fanga liðlega helming íbúa Vestmannaeyja. Ræningjarnir fluttu hátt á þriðja hundrað Eyjamenn til Alsír og seldu þá þar í þrældóm. Þessi atburður markaði svo djúp spor að hann lifir ennþá í minningu Eyjamanna.

Sögusetrið 1627 er félag sem hefur m.a. það markmið að varðveita og halda á lofti sögu Tyrkjaránsins og öðrum þáttum úr sögu og menningu Vestmannaeyja.

Gangan á sunnudag, og ekki síður afhjúpun nýs söguskiltis við minnis-merki Guðríðar Símonardóttur, er einn liður í þessu starfi félagsins.

Gangan hefst við Ofanleiti þar sem safnast verður saman

Í göngunni verða rifjaðir upp þættir úr sögu Tyrkjaránsins og m.a. staldrað við Hundraðmannahelli og Fiskhella. Kaffi og kleinur verða í boði við minnismerki Guðríðar, þar sem söguskiltið verður afhjúpað. Gangan endar síðan á  Skansinum.

Um er að ræða auðvelda gönguför sem tekur um 1 ½  – 2 klst. með stuttum stoppum.

Göngustjóri er Helga Hallbergsdóttir. Öll hjartanlega velkomin. Sögusetrið 1627

Nýjustu fréttir

Laskað lið ÍBV tapaði gegn Val
Athugasemd
Dísa leiðir Eyjalistann
Kvenfélagið Líkn færði HSU veglega gjöf
Loðnan tengir saman Vestmannaeyjar og Japan
Listir og menning í Framhaldsskóla Vestmannaeyja
Lestur ársreiknings bæjarins gefur allt aðra mynd
Ísólfur Gylfi – 42 ár frá Helliseyjarslysinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.