Huginn VE kom með fyrsta farminn úr norsk-íslensku síldinni þetta árið um kl. 18.00 á mánudaginn. Var hann með um 800 tonn sem fengust fyrir austan land. Stuttu seinna kom Álsey VE með svipaðan afla. Síldinni úr Huginn var landað hjá Vinnslustöðinni þar sem síldin er fryst og úr Álsey hjá Ísfélaginu.
Síðan hafa Suðurey VE og Ísleifur VE landað í vikunni og er verið að vinna síld í bæði hjá Ísfélagi og Vinnslustöð. Gullberg er væntanlegt kl. 18.00 í dag með um 900 tonn til Vinnslustöðvarinnar þannig að næg vinna er framundan.
Huginn og Álsey nálgast Vestmannaeyjar á mánudaginn.
Mynd – Addi í London.
Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst