VSV - Blótað til heiðurs fyrrverandi starfsfólki

„Það var hörkumæting á blótið í ár. Við vorum um sextíu saman komin, mættum klukkan sex og vorum að fram yfir klukkan níu. Mjög vel heppnað og afar þakklátir gestir sem kvöddust að teitinu loknu,“ segir Þór Vilhjálmsson um þorrablót Vinnslustöðvarinnar til heiðurs fyrrverandi starfsmönnum sínum og mökum þeirra að kvöldi fimmtudags 8. febrúar.

Þór sinnir mikilvægu verkefni við undirbúninginn. Er þá í hlutverki smaladrengs nema hvað hann rakar saman fólki en ekki fénaði. Þór hringir í væntanlega gesti og býður til blóts á þann persónulega hátt sem honum er lagið.

Sigurgeir Brynjar,  framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, kom beint á samkomuna frá Hamborg, ávarpaði gesti og rakti það sem efst væri á baugi í starfsemi fyrirtækisins.

Halli Steini – Haraldur Þorsteinn Gunnarsson – sýndi Eyjamyndir sem gerðu mikla lukku.

Og að sjálfsögðu svignuðu svo borð undan þorramat og drykkjarföngum af öllu tagi og við allra hæfi.

„Vinnslustöðin hefur í þó nokkur ár boðið fyrrverandi starfsmönnum og mökum á þorrablót, eina fyrirtækið í Vestmannaeyjum sem það gerir. Við vorum áður í sal Akoges en í glæsilegum matsal Vinnslustöðvarinnar sjálfrar eftir að hann var tekinn í gagnið.

Þetta mælist afar vel fyrir og ég nefni þá um leið að Vinnslustöðin hefur árum saman gefið fyrrverandi starfsmönnum og fjölskyldum þeirra síld og veglega konfektkassa fyrir jólin – heimsendar hátíðarkveðjur á aðventunni.

Ráðamenn fyrirtækisins eiga miklar þakkir skildar fyrir ræktarsemi við fyrrverandi starfsmenn sína.

Af vefsíðu Vinnslustöðvarinnar – vsv.is

Myndir:

Um 60 gestir skemmtu sér vel.

Binni, Þór og Dollý.

Gunna og Svanhildur nutu kvöldsins í góðum hóp.

Nýjustu fréttir

Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra enn ókominn
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til vörukynninga
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en verkefnið enn í þróun 
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og fjárhagsáætlun bæjarins
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og glæsilegur samhljómur
Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.