Tekist á um heimgreiðslur

Heimgreiðslur voru til umræðu á fundi fræðsluráðs í vikunni. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu heimgreiðslna eftir breyttar reglur sem tóku gildi 1. janúar sl. Í janúar lágu fyrir 14 umsóknir um heimgreiðslur fyrir börn sem eru orðin 12 mánuða gömul og á biðlista eftir leikskólaplássi. Af þeim fengu 7 fulla heimagreiðslu og 4 hlutagreiðslu. Þrír af umsækjendum voru yfir tekjumörkum og milli 200 – 400 þúsund yfir viðmiðunum (1.050.000 kr). Styrkurinn var greiddur 5. febrúar og heildargreiðslur fyrir janúar 1.718.137 kr.

Áhyggjur hafa raungerst
Fulltrúar D listans lögðu fram tillögu um málið með eftirfarandi bókun. “Í ljósi þess að áhyggjur undirritaðra hafa raungerst og hópur foreldra fær nú engar eða mun minni heimgreiðslur en áður leggja undirritaðar fram eftirfarandi tillögu; “Fyrirkomulagi heimgreiðslna Verði breytt aftur í fyrra horf og þeir sem rétt eiga á heimgreiðslum fái 110þ kr mánaðarlega óháð tekjum”.

Kosið var um tillögu D listans og var hún felld með 3 atkvæðum E og H listans á móti 2 atkvæðum D listans.

Í samræmi við áætlun
Fulltrúar E og H lista lögðu fram eftirfarandi bókun um málið: “Áhugavert er að taka stöðuna eftir fyrsta mánuð heimgreiðslna skv. nýju fyrirkomulagi og er dreifingin milli þeirra sem eru yfir tekjuviðmiðum, þeirra sem fá hlutagreiðslur eða fullar greiðslur í samræmi við það sem áætlað var. Auk þess hafa foreldrar þriggja barna tekið ákvörðun um að þiggja heimgreiðslur frekar en að þiggja leikskólapláss strax. Nauðsynlegt er að gefa breyttu fyrirkomulagi lengri tíma til að geta metið áhrif þess.”

Ekki brugðist við óánægju foreldra
Málinu var svo lokað með bókun frá fulltrúm D lista: “Leitt að ekki sé hægt að bregðast hratt við óánægju foreldra gagnvart fyrirkomulaginu né tekið tillit til athugasemda minnihluta en undirritaðar leggja til að málið verði tekið fyrir að nýju í lok apríl þegar ársfjórðungsmat liggur fyrir.”

Nýjustu fréttir

Fjaran afhjúpar gamla leyndardóma
Skólastarf hefst á ný í GRV
Höfum kjark til að horfa á staðreyndir
Sindri Georgsson – Fátt sem toppar utanvegahlaup í Eyjum
Fjórði stærsti júlímánuður í sögu Herjólfs
Karlasveit GV leikur í deild þeirra bestu að ári
Mikið siglt og víða leitað eftir afla
Skólastarf að hefjast á ný í FÍV
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.