Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 564 milljónir

Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2023 var tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gær.

Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir.

Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 9.152 m.kr. og rekstrargjöld 8.168 m.kr.

Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um rúmar 564 m.kr. Fyrir afskriftir og fjármagnsliði var rekstrarafkoma A-hluta bæjarsjóðs jákvæð um 410m.kr. Að teknu tilliti til afskrifta og fjármagnsliða var afkoma A-hluta jákvæð um 231 m.kr.

Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu rúmum 17.325 m.kr. í árslok 2023. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í rúmum 1.590 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 988 m.kr. á árinu.

Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er skuldastaða Vestmannaeyjabæjar við lánastofnanir mjög góð, Aðalsjóður verður skuldlaus við fjármálastofnanir á árinu 2024. Jafnframt eru skuldaviðmið, sem oft er vísað til í umræðu um fjármál sveitarfélaga, lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 20,7% í árslok 2023.

Ársreikningurinn endurspeglar vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins sem er vel í stakk búið að standa undir framtíðaruppbygginu í sveitarfélaginu. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg, vel ígrunduð og framtíðarhorfur samfélagsins bjartar.

Nýjustu fréttir

Hermundur hugmyndasmiður Kveikjum neistann 
99 á atvinnuleysisskrá í Eyjum – árstíðasveiflur skýra haustaukningu
Ómetanlegt að sjá heilt samfélag taka höndum saman
Radarhýsið komið á sinn stað á Stórhöfða
Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.