Eyjamaðurinn Bjarni Ólafur Magnússon opnar sýninguna, Þá og þar í Gallerí Fold á morgun, laugardaginn 4. maí. Er þetta fyrsta einkasýning Bjarna Ólafs í Gallerí Fold. Á sýningunni eru bæði olíuverk og teikningar byggðar á landslagi, raunverulegu eða ekki, endurminningum og órum.
Bjarni Ólafur er fæddur og alinn upp í Vestmannaeyjum. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1982 og stundaði nám í grunndeild Myndlistar- og handíðaskóla Íslands 1982 til 1983.
Árið 1988 hélt hann til Bandaríkjanna þar sem hann lagði stund á myndlistarnám í Kansas City Art Institute árin 1988 til 1990. Um vorið 1990 var hann gestanemandi við málaradeild San Fransico Art Institute. Árin 1991 til 1992 stundaði Bjarni nám við Goldsmiths/University of London.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Spyr hvort Herjólfur III verði varaskip í Eyjum í vetur
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs