105.000 tonn af síld veidd í Grundarfirði

Síldveiðiflotinn er búinn að veiða tvo þriðju af útgefnum síldarkvóta. Þessi afli hefur nær allur veiðst á litlu svæði í Grundarfirði. Margir bátar eru langt komnir með kvótann. Hafrannsóknastofnun er við rannsóknir í firðinum en í fyrra mældi stofnunin gífurlegt magn síldar á því svæði sem nú gefur ævintýralega veiði.Samkvæmt tölum Fiskistofu er síldveiðiflotinn búinn að veiða 105 þúsund tonn af síld á þessari vertíð. Af þeim nítján skipum sem hafa beitt sér af krafti eru ellefu sem eru langt komin með kvóta sína. Fjöldi síldarbáta hefur verið við veiðar á firðinum síðustu daga, líkt og verið hefur síðan í októberbyrjun. Hafa allt að fimmtán bátar verið við veiðar á sama tíma, á litlu svæði nálægt landi. Mörg skipin kasta á svo grunnu vatni að þau festa og rífa veiðarfærin sem helst hefur verið til að spilla fyrir nokkuð þægilegri vertíð. Áhafnir skipanna almennt fagna því að ganga að síldinni vísri inn á firði þar sem skjól er fyrir veðri og vindum. Útgerðir skipa sem landa afla sínum á höfnum á Austurlandi efast þó um að útkoma vertíðarinnar gefi mikið í aðra hönd þar sem langar siglingar eru mjög kostnaðarsamar.

Hafrannsóknastofnun er nú við mælingar á Grundarfirði en í fyrra mældi stofnunin 618 þúsund tonn af fullorðinni síld í Grundarfirði.
Hrygningarstofninn mældist um 750 þúsund tonn svo megnið af fullorðinni síld á Íslandsmiðum var í Grundarfirði. Hvað þessu veldur er óútskýrt en til marks um hversu sérstakar aðstæður mæta síldarsjómönnum í Grundarfirði þá hefur Hafrannsóknastofnunin þurft að fá trillur til að vinna hluta verksins og menn með þekkingu til að sigla milli skerja og upp í harða fjöru til mælinga. Hafrannsóknaskipið Bjarni Sæmundsson fór út í gær til að halda áfram mælingum á svæðinu en niðurstöður eru ekki væntanlegar strax.

Nýjustu fréttir

Landfylling við Eiði: Samið við Þjótanda um fyrstu áfanga
Spurt og svarað: Ármann Halldór frá Sjálfstæðisflokkum
Arnar kom íslenska landsliðinu á EM 2026
ÍBV og FH skildu jöfn á Hásteinsvelli
Vinnslustöðin snýr vörn í sókn á krefjandi ári
Bilun í Herjólfi veldur lengri siglingatíma
Spurt og svarað: Guðni Hjöll frá Miðflokknum
ÍBV hefur leik í Bestu deildinni – tekur á móti FH á Hásteinsvelli
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.