Þórarinn Ingi Valdimarsson verður í leikbanni þegar ÍBV tekur á móti Grindvíkingum næstkomandi sunnudag. Þórarinn Ingi fékk gult spjald í leiknum gegn Breiðabliki og er því kominn með fjögur slík í sumar sem þýðir eins leiks bann. Leikmaðurinn var einn af betri mönnum ÍBV gegn Blikum og er einn af lykilmönnum liðsins.