Vinnslustöðin auglýsti eftir fólki í fimm stöður hjá fyrirtækinu um miðjan júlí en þá var auglýst eftir sviðsstjóra bolfisks, sviðsstjóra uppsjávarfisks, rekstarstjóra, sölumanni fersks og frosins bolfisks og verkstjóra í fiskvinnslu. Í síðustu viku auglýstu fimm fyrirtæki eftir starfsfólki, mörg hver í þjónustugeiranum sem þýðir að fjölgun ferðamanna kallar á fleiri hendur og skapar atvinnutækifæri. Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði góðan hóp af mjög hæfu fólki hafa sótt um hverja stöðu fyrir sig.