Síðustu tvær vikur hafa verið með rólegra móti hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum og engin alvarleg mál ratað inn á borð lögreglunnar. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og engin teljandi vandræði komu upp við skemmtistaði bæjarins. Nú eru skólarnir að hefja vetrastarf sitt en lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega, sérstaklega í kringum skóla bæjarins. Þá eru ökmenn hvattir til að virða gangbrautarrétt gangandi vegfarenda. Dagbókarfærslu lögreglunnar má lesa hér að neðan.