Lögreglan í Vestmannaeyjum minnir á að 1. september næstkomandi breytast útivistareglur barna og styttist útivistatíminn um tvær klukkustundir. Þannig mega börn 12 ára og yngri, ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20:00 nema í fylgd með fullorðnum. Börn á aldrinum 13 til 16 ára skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22:00, svo lengi sem þau eru ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta-a eða æskulýðssamkomu. Aldurstakmörkin miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.