Fyrir nokkrum mánuðum sótti Sigurjón Ingvarsson og fleiri um lóð nr. 13a við Vesturveg, (beint á móti Vöruval) fyrir byggingu á íbúðarhúsnæði. Á fundi umhverfi- og skipulagsnefndar í vikunni, afsalaði Sigurjón sér þessari lóð. Á sama fundi sótti Sólrún Lilja Ragnarsdóttir og Ingvar Örn Karlsson um þessa sömu lóð undir einbýlishús. Samþykkti ráðið að úthluta þeim þessari lóð.