Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu og engin alvarleg mál sem upp komu. Töluvert tilstand var við komu varðskipsins Þórs til Vestmannaeyjar þann 26. október sl. og stóðu lögreglumenn m.a. heiðursvörð við skipið í tilefni af komu þess. Eitthvað var um útköll í tengslum við skemmtanahald helgarinnar en þau voru í nær öllum tilvikum léttvæg og leystust á staðnum.