Knattspyrnulið ÍBV er að hefja undirbúning fyrir sumarið 2012 en æfingar hófust í vikunni. Magnús Gylfason, nýr þjálfari liðsins, stýrir leikmannahópnum í Reykjavík en Dragan Kazic, aðstoðarþjálfari liðsins síðustu ár, stýrir hópnum í Vestmannaeyjum. Hópurinn nýtir svo helgarnar til að æfa saman, bæði í Reykjavík og í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram í frétt á heimasíðu félagsins, www.ibvsport.is.