Íþróttasamband Íslands (ÍSÍ) er með ákveðið gæðakerfi sem snýr að því hvernig starfsemi íþróttafélaga er háttað. Ef félög óska eftir, geta þau látið ÍSÍ gera úttekt á starfsemi sinni með það fyrir augum að geta tekið upp gæðastimpilinn „Fyrirmyndarfélag ÍSÍ“. Til þess að standast kröfur ÍSÍ verða aðildarfélögin uppfylla ákvæði varðandi menntun þjálfara, unglingastarf, forvarnarstarf og búa til námsskrár fyrir þjálfun barna og unglinga svo að dæmi séu nefnd.