ÍBV var ekki í vandræðum með að tryggja sér sæti í 8-liða úrslitum Símabikarsins en liðið tók á móti Aftureldingu í kvöld í 16-liða úrslitum. ÍBV hafði mikla yfirburði í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik enda var staðan 18:5 fyrir ÍBV í hálfleik. Í seinni hálfeik fengu varamenn ÍBV að spreyta sig og þá jafnaðist leikurinn nokkuð en ÍBV vann að lokum fimmtán marka sigur, 30:15.