Þeir Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari A-landsliðsins og Jóhannes Ólafsson, stjórnarmaður KSÍ hittu á fyrrum leikmann ÍBV á ferð sinni með íslenska landsliðinu í Slóveníu á dögunum. Andrej Jerina er einn eftirminnilegasti leikmaður sem hefur spilað með ÍBV og líklega einn af betri erlendu leikmönnum sem hingað hafa komið.