Leikmenn karlaliðs ÍBV í handbolta vilja sjálfsagt gleyma leiknum í dag gegn Haukum sem fyrst. Liðið náði sér engan veginn á strik í dag, vörnin var reyndar þokkaleg en markvarslan lítil og sóknarleikurinn á köflum mjög vandræðalegur. �?að var reyndar ekki þannig að ÍBV hefði ekki skapað sér færi en markvörður Hauka, Giedrius Morkunas fór illa með Eyjamenn sem misstu allt sjálftraust og skutu illa á markið. Alls varði Morkunas 22 skot, þar af tvö víti og þar skildi einfaldlega að. Á sama tíma vörðu markverðir ÍBV 10 skot, þar af aðeins 3 í fyrri hálfleik. En það var fyrst og fremst nýting Eyjamanna úr dauðafærum sem fór illa með ÍBV í dag og það er eitthvað sem verður nauðsynlega að laga fyrir fjórða leik liðanna, í Eyjum á þriðjudagskvöld.
Staðan nú er 1:2 fyrir Hauka og geta þeir því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í Eyjum.
�?rátt fyrir afleitan leik innan vallar, voru það stuðningsmenn ÍBV sem stóðu upp úr eftir leikinn. �?eir studdu við sitt lið, þrátt fyrir að liðið ætti ekki möguleika og héldu því áfram eftir leikinn. Flottustu stuðningsmenn landsins og fyrirmynd fyrir aðra stuðningsmenn.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 4/3, Agnar Smári Jónsson 4, Grétar Eyþórsson 2, Einar Gauti �?lafsson 2, Róbert Aron Hostert 2, Hallgrímur Júlíusson 1, Guðni Ingvarsson 1, Magnús Stefánsson 1, Andri Heimir Friðriksson 1, Svavar Grétarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Ingibjargarson 9, Henrik Eidsvaag 1.