Vestmannaeyjabær mun á næstu vikum ráðast í átak vegna gáma án tilskilins leyfis, númeralausra bifreiða og bílflaka. Lóðarhöfum þar sem gámar eru staðsettir án leyfis verður sent bréf með fresti til að fjarlægja þá.
Þetta kemur fram í tilkynningu bæjarins frá 14. október. Samhliða verður farið yfir númeralausar bifreiðar og bílflök sem standa til lengri tíma á lóðum og almennum bílastæðum.
Markmiðið er að bæta ásýnd og umgengni, draga úr óþarfa langtímageymslu og bregðast við þar sem aðstæður kunna að valda lýti, óþrifnaði eða hættu.
Samkvæmt tilkynningunni miðar átakið fyrst og fremst að því að gefa lóðarhöfum tækifæri til að koma sínum málum í rétt horf. Verði ekki brugðist við innan tilgreinds frests verði málin tekin til frekari afgreiðslu. Eftir atvikum verði þá beitt þeim úrræðum sem lög og reglugerðir heimila til að knýja fram úrbætur.
Ekki kemur fram hversu langur frestur verði veittur.
Byggingarfulltrúi kynnti fyrirhugað átak á fundi umhverfis- og skipulagsráðs 12. október. Ráðið lýsti yfir ánægju með átakið og fól honum framgang málsins.
Vestmannaeyjabær hvetur lóðarhafa til að fara yfir aðstæður á lóðum sínum og gera viðeigandi ráðstafanir.