ÍBV vann sex marka sigur á Þór

Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti Þór í 6. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn lönduðu mikilvægum sex marka sigri, 37-31. Þórsarar byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirhöndina á fyrstu mínútunum. Þeir voru með þriggja marka forystu, 5-8, eftir 11 mínútna leik. Eyjamenn jöfnuðu metin í 12-12 þegar rúmar átta mínútur […]

ÍBV tapaði naumlega gegn Grindavík/Njarðvík

Kvennalið ÍBV í fótbolta mætti Grindavík/Njarðvík á útivelli í næstsíðustu umferð efri hluta Bestu deildar kvenna í dag. Leiknum lauk með 2-1 sigri Grindavík/Njarðvík. Fyrri hálfleikurinn var frekar bragðdaufur og lítið um færi. Staðan var markalaus þegar liðin gengu til búningsklefa í hálfleik. Heimakonur náðu forystunni í upphafi síðari hálfleiks. Ása Björg Einarsdóttir átti þá […]

ÍBV vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH

Karlalið ÍBV í fótbolta vann sanngjarnan 3-1 sigur á FH þegar liðin mættust á Hásteinsvelli í næstsíðustu umferð neðri hluta Bestu deildar karla í dag. Hvorugt lið hafði að miklu að keppa fyrir leikinn. FH-ingar eru öruggir með sæti sitt í deildinni á næsta tímabili en ÍBV féll niður í Lengjudeildina í síðustu umferð. Eyjamenn […]

Ábending frá Herjólfi

Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag, föstudaginn 16. október. Fyrstu tvær ferðir laugardagsins verða einnig til Landeyjahafnar en á sunnudag og mánudag verður siglt til Þorlákshafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi. Brottför frá Vestmannaeyjum í dag er klukkan 17:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 21:15. Brottförin frá Landeyjahöfn færist því frá […]

ÍBV og Þór jöfn að stigum fyrir leik kvöldsins

Karlalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Þór frá Akureyri í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld, föstudaginn 16. október. Leikurinn er í sjöttu umferð Olísdeildar karla og hefst klukkan 18:00. Liðin eru jöfn að stigum og því mikilvæg stig í húfi. ÍBV situr í sjötta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fimm leiki, tvo sigra og […]

Snorri Steinn velur landsliðshópinn fyrir undankeppni EM – Elliði Snær með

Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, hefur tilkynnt 20 manna hóp Íslands fyrir fyrstu tvo leiki liðsins í undankeppni Evrópumótsins 2028. Hópurinn kemur saman mánudaginn 2. nóvember. Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson, línumaður Gummersbach, er í hópnum. Elliði verður ekki með í leiknum gegn Eistlandi af persónulegum ástæðum. Viggó Kristjánsson missir af viðureigninni gegn Úkraínu […]

Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró

Stofnmæling botnfiska að haustlagi, sem jafnan er kölluð haustrall, hófst 29. september síðastliðinn og er nú um það bil hálfnuð. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Hafrannsóknastofnunar. Tvö skip taka þátt í rannsókninni, togarinn Breki VE-61 og rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF-200. Breki annast sýnatöku á grunnslóð en Árni Friðriksson á djúpslóð, þar sem dýpstu […]

Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið vegna sunnan og suðvestan storms. Viðvörunin gildir frá klukkan 15 sunnudaginn 18. október til klukkan 1 aðfaranótt mánudags. Útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag. Á sama tíma situr voldug hæð yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri […]

Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar

landeyjah_her_nyr

Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir skerðingu framlaga til samgangna í fjárlagafrumvarpinu og skorar á ríkisstjórnina að efla grunnþjónustu og innviði á landsbyggðinni. Allir níu bæjarfulltrúarnir standa að sameiginlegri bókun um málið. Fjármögnun samgangna við Vestmannaeyjar var meðal umræðuefna á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór þar yfir helstu áhyggjur vegna fjárlagafrumvarpsins, meðal annars hvað […]

Boða átak vegna gáma og númerslausra bíla

Vestmannaeyjabær mun á næstu vikum ráðast í átak vegna gáma án tilskilins leyfis, númeralausra bifreiða og bílflaka. Lóðarhöfum þar sem gámar eru staðsettir án leyfis verður sent bréf með fresti til að fjarlægja þá. Þetta kemur fram í tilkynningu bæjarins frá 14. október. Samhliða verður farið yfir númeralausar bifreiðar og bílflök sem standa til lengri […]

Tvær ferðir til Landeyjahafnar fyrir hádegi

Herjólfur siglir tvær ferðir til og frá Landeyjahöfn fyrri hluta dags í dag, föstudaginn 16. október. Brottfarir frá Vestmannaeyjum eru kl. 07:00 og 09:30 og frá Landeyjahöfn kl. 08:15 og 10:45. Samkvæmt tilkynningu frá Herjólfi verður gefin út tilkynning um siglingar seinni hluta dags fyrir klukkan 15:00. (meira…)

Eyjakonur vilja styrkja stöðu sína í þriðja sæti

Kvennalið ÍBV sækir Grindavík/Njarðvík heim í dag, föstudaginn 16. október, í efri hluta Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á gervigrasvelli Nettóhallarinnar og hefst klukkan 17:00. Eyjakonur eru í þriðja sæti deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir af tímabilinu. ÍBV hefur leikið 21 leik í sumar, unnið níu, gert þrjú jafntefli og tapað níu. Liðið hefur […]

Eyjamenn leika síðasta heimaleik tímabilsins í dag

Karlalið ÍBV tekur á móti FH á Hásteinsvelli í dag, föstudaginn 16. október, í næstsíðustu umferð Bestu deildar karla. Flautað verður til leiks klukkan 17:00. Fall Eyjamanna úr deildinni er þegar orðið staðreynd, en liðið á tvo leiki eftir af tímabilinu. ÍBV situr á botni neðri hlutans með 19 stig eftir 25 leiki. FH er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.