Karlalið ÍBV í handknattleik tekur á móti Þór frá Akureyri í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í kvöld, föstudaginn 16. október. Leikurinn er í sjöttu umferð Olísdeildar karla og hefst klukkan 18:00. Liðin eru jöfn að stigum og því mikilvæg stig í húfi.
ÍBV situr í sjötta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fimm leiki, tvo sigra og þrjú töp. Þór er sæti neðar með jafnmörg stig og sömu niðurstöðu úr fyrstu fimm leikjunum.
Eyjamenn hafa skorað 151 mark í leikjunum fimm en fengið á sig 161. Þórsarar hafa hins vegar skorað 171 mark og fengið á sig 176. Það má því búast við áhugaverðri viðureign tveggja liða sem vilja styrkja stöðu sína í deildinni.
Haukar eru á toppi Olísdeildarinnar með 12 stig eftir sex leiki og fullt hús stiga. Afturelding er í öðru sæti með níu stig og KA í því þriðja með átta.
Þórsarar eru þegar komnir til Vestmannaeyja og hefur ÍBV staðfest að leikurinn fari fram þrátt fyrir óvissu um samgöngur.
Félagið hvetur stuðningsmenn til að fjölmenna í stúkuna og skapa góða stemningu. Pizzur frá Vöruhúsinu verða til sölu í hálfleik og leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Handboltapassanum.