Áhyggjur af fjármögnun Herjólfs og Landeyjahafnar
landeyjah_her_nyr
Herjólfur siglir inn Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Bæjarstjórn Vestmannaeyja gagnrýnir skerðingu framlaga til samgangna í fjárlagafrumvarpinu og skorar á ríkisstjórnina að efla grunnþjónustu og innviði á landsbyggðinni. Allir níu bæjarfulltrúarnir standa að sameiginlegri bókun um málið.

Fjármögnun samgangna við Vestmannaeyjar var meðal umræðuefna á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 13. október. Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri fór þar yfir helstu áhyggjur vegna fjárlagafrumvarpsins, meðal annars hvað varðar framlög til reksturs Herjólfs, dýpkunar og nauðsynlegra framkvæmda í Landeyjahöfn.

Framkvæmdirnar tengjast breytingum á höfninni í framhaldi af skýrslu dönsku straumfræðistofnunarinnar. Í yfirferð bæjarstjóra kom jafnframt fram að mesti niðurskurðurinn í fjárlagafrumvarpinu væri í málaflokkunum sveitarfélög og byggðarmál.

Segja skerðingu samgönguframlaga óásættanlega

Í sameiginlegri bókun segir bæjarstjórn aukna skattheimtu á undirstöðuatvinnugreinar landsbyggðarinnar, svo sem sjávarútveg og ferðaþjónustu, samhliða skerðingu framlaga til samgangna vera óásættanlega.

Bæjarstjórn skorar á ríkisstjórnina að mæta framlagi landsbyggðarinnar til þjóðarbúsins með því að efla grunnþjónustu og innviði. Þar eru sérstaklega nefndar samgöngur, almannavarnir, menntun og heilbrigðisþjónusta.

„Mikilvægt er að skapa hvetjandi umhverfi til verðmætasköpunar sem getur staðið undir sívaxandi kostnaði öflugs velferðarsamfélags,“ segir í bókuninni.

Ekki eru tilgreindar fjárhæðir í fundargerðinni sem sýna umfang þeirrar skerðingar sem bæjarstjórn gagnrýnir eða hvaða áhrif hún gæti haft á samgöngur við Eyjar.

Vonbrigði með að lagareldisfrumvarp vanti

Bæjarstjóri fór einnig yfir komandi þingvetur og lýsti vonbrigðum með að frumvarp um lagareldi væri ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Ekki tókst að ljúka afgreiðslu frumvarpsins á síðasta þingi.

Fjárlagafrumvarpið var kynnt 7. september og þingmálaskrá vetrarþingsins lögð fram 10. september.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.