Ábending frá Herjólfi
Herjólfur. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Herjólfur siglir eina ferð til Landeyjahafnar síðdegis í dag, föstudaginn 16. október. Fyrstu tvær ferðir laugardagsins verða einnig til Landeyjahafnar en á sunnudag og mánudag verður siglt til Þorlákshafnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Herjólfi.

Brottför frá Vestmannaeyjum í dag er klukkan 17:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 21:15. Brottförin frá Landeyjahöfn færist því frá klukkan 20:45.

Tvær ferðir til Landeyjahafnar á laugardagsmorgun

Laugardaginn 17. október verður siglt frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og 09:30 og frá Landeyjahöfn klukkan 08:15 og 10:45.

Tilkynning um siglingar síðdegis verður gefin út fyrir klukkan 15:00 á laugardag. Samkvæmt spá versnar veður þegar líður á daginn.

Óhagstætt útlit síðdegis á sunnudag

Sunnudaginn 18. október og mánudaginn 19. október er áætlað að sigla til Þorlákshafnar samkvæmt eftirfarandi áætlun:

  • Frá Vestmannaeyjum klukkan 07:00 og 16:00.
  • Frá Þorlákshöfn klukkan 10:45 og 19:45.

Síðari brottför frá Eyjum færist því frá klukkan 17:00 til 16:00 og síðari brottför frá landi frá klukkan 20:45 til 19:45.

Í tilkynningunni er þó vakin athygli á að veðurspá geri ráð fyrir óhagstæðum aðstæðum til siglinga til beggja hafna síðdegis á sunnudag. Verði breytingar á áætlun verður tilkynnt um þær fyrir klukkan 15:00 þann dag.

Farþegar eru minntir á að á þessum árstíma geti orðið breytingar á því til hvorrar hafnarinnar er siglt og því sé ekki æskilegt að skilja eftir farartæki í annarri hvorri höfninni. Þeir sem ætla að nýta gistirými ferjunnar þurfa að hafa með sér eigin búnað.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.