ÍBV vann sex marka sigur á Þór
Ljósmynd/Sigfús Gunnar Guðmundsson.

Karlalið ÍBV í handbolta tók á móti Þór í 6. umferð Olís deildar karla í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn lönduðu mikilvægum sex marka sigri, 37-31.

Þórsarar byrjuðu leikinn betur og höfðu yfirhöndina á fyrstu mínútunum. Þeir voru með þriggja marka forystu, 5-8, eftir 11 mínútna leik. Eyjamenn jöfnuðu metin í 12-12 þegar rúmar átta mínútur voru til hálfleiks. 

Þórsarar náðu aftur forystunni, en Eyjamenn jöfnuðu á ný og var staðan 16-16 þegar um mínúta var eftir af fyrri hálfleik. ÍBV náði svo forystunni undir lokin og leiddi 17-16 í hálfleik.

Eyjamenn byrjuðu síðari hálfleikinn vel og náðu fimm marka forskoti, 24-19, þegar tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum. Eftir það höfðu þeir yfirhöndina og héldu forystunni út leikinn.

ÍBV náði sex marka forskoti þegar tíu mínútur voru til leiksloka. Þórsarar minnkuðu muninn í fjögur mörk, 33-29, en komust ekki nær en það. Lokatölur urðu því 37-31 ÍBV í vil.

Dagur Arnarsson átti stórkostlegan leik í liði ÍBV og var markahæstur með 12 mörk. Petar Jokanovic átti einnig góðan leik í liði ÍBV og varði 15 skot.

Eftir sex umferðir situr ÍBV í 6. sæti deildarinnar með sex stig. Þór er í 9. sæti með fjögur stig.

Mörk ÍBV: Dagur Arnarsson 12 mörk, Anton Frans Sigurðsson 5, Magnús Dagur Jónatansson 5, Daníel Þór Ingason 4, Sveinn José Rivera 4, Jason Stefánsson 3, Gary Emanuel Phillips 2, Kristófer Ísak Bárðarson 1, Petar Jokanovic 1. 

Úrslit kvöldsins í Olís deild karla:

ÍBV 37 – 31 Þór

Stjarnan 35 – 33 KA 

Víkingur R. 31 – 41 Valur

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.