Breki VE tekur þátt í haustralli Hafró
Haustrall Hafrannsóknastofnunar er um það bil hálfnað en togarinn Breki VE-61 og rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF-200 annast rannsóknirnar - Áætlað er að toga á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið
Áhöfn Breka VE á haustrallinu árið 2025. Breki annast sýnatöku á grunnslóð í rannsókninni. Mynd: Hafrannsóknastofnun.

Stofnmæling botnfiska að haustlagi, sem jafnan er kölluð haustrall, hófst 29. september síðastliðinn og er nú um það bil hálfnuð. Þetta kemur fram í umfjöllun á vef Hafrannsóknastofnunar.

Tvö skip taka þátt í rannsókninni, togarinn Breki VE-61 og rannsóknaskipið Árni Friðriksson HF-200. Breki annast sýnatöku á grunnslóð en Árni Friðriksson á djúpslóð, þar sem dýpstu togstöðvarnar eru á allt að 1.400 metra dýpi.

Haustrallið hefur farið fram árlega með sambærilegum hætti frá árinu 1996. Eitt helsta markmið þess er að styrkja stofnstærðarmat helstu nytjastofna botnfiska á Íslandsmiðum. Rannsóknin er jafnframt mikilvæg viðbót við vorrall stofnunarinnar, sem fer fram síðla vetrar ár hvert.

Sérstök áhersla á djúpsjávarfiska

Í haustrallinu er lögð sérstök áhersla á rannsóknir á grálúðu, djúpkarfa og öðrum djúpsjávarfiskum. Útbreiðslusvæði margra þessara tegunda ná út fyrir rannsóknasvæði vorrallsins.

Auk upplýsinga um stofnstærð og útbreiðslu fisktegunda er safnað gögnum um meðal annars sjávarhita, tegundasamsetningu, fæðu fiska og botndýr. Gagnasöfnunin er því einnig mikilvægur þáttur í langtímavöktun lífríkis á íslensku hafsvæði.

Rusl í afla hefur verið skráð með kerfisbundnum hætti í um áratug og veita þær upplýsingar innsýn í útbreiðslu rusls á hafsbotni.

Fyrstu niðurstöður væntanlegar í desember

Alls taka tíu vísindamenn þátt í leiðangrinum, auk áhafna skipanna tveggja. Hægt er að fylgjast með ferðum þeirra og sjá staðsetningu togstöðva á skip.hafro.is.

Gert er ráð fyrir að fyrstu niðurstöður verði aðgengilegar í byrjun desember, þegar frumúrvinnslu gagna lýkur. Þær verða birtar á gagnasíðu stofnmælinga Hafrannsóknastofnunar.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.