Gul viðvörun fyrir allt landið á sunnudag
Skjáskot/vedur.is

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun fyrir allt landið vegna sunnan og suðvestan storms. Viðvörunin gildir frá klukkan 15 sunnudaginn 18. október til klukkan 1 aðfaranótt mánudags.

Útlit er fyrir að lægð fari hratt til norðausturs fyrir vestan og norðvestan land síðdegis á sunnudag. Á sama tíma situr voldug hæð yfir Bretlandseyjum og sunnanverðri Skandinavíu.

Því er búist við að hvessi um allt land. Víða má gera ráð fyrir sunnan og síðar suðvestan hvassviðri eða stormi, með meðalvindhraða á bilinu 15–25 metrar á sekúndu.

Snarpar vindhviður og rigning

Veðurstofan varar við líkum á mjög snörpum vindhviðum við fjöll sem geti verið varasamar fyrir ökutæki. Lausamunir geta einnig fokið. Þá er útlit fyrir talsverða rigningu sunnan- og vestanlands.

Viðvörunin nær meðal annars til Vestmannaeyja. Fólk með ferðaplön á sunnudag er hvatt til að fylgjast með veðurspám og tilkynningum samgönguaðila.

Nýjustu fréttir

Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.