Nær ÍBV fyrsta sigrinum í dag?
Karlalið ÍBV í knattspyrnu tekur í dag á móti Fylki klukkan 18:00 á Hásteinsvelli. Bæði lið hafa farið frekar illa af stað, Fylkir er í neðsta sæti með ekkert stig og hefur ekki skorað mark en ÍBV er í 9. sæti með eitt stig og tvö mörk eftir fyrstu tvær umferðirnar. Leikurinn átti fyrst að fara fram í Árbænum en þar sem völlur Fylkismanna er ekki klár fyrir átökin í sumar, víxluðu liðin leikjum enda Hásteinsvöllur í góðu standi.
ÍBV gerði jafntefli gegn Fram í fyrsta leik en tapaði svo klaufalega gegn Stjörnunni á heimavelli þar sem leikmenn liðsins fóru afskaplega illa með fjölmörg dauðafæri. �?að er hins vegar ljóst að ef ÍBV spilar eins og það gerði í fyrri hálfleik gegn Stjörnunni, og nýtir auk þess færin, þá má eiga von á fyrsta sigrinum í dag. En eins og svo oft áður, vantar markaskorara í liðið og það verður að segjast eins og er að Jonathan Glenn, framherjinn frá Trínidad og Tóbakó, hefur fáa heillað í fyrstu tveimur leikjunum.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.