Fólkið okkar hefur verið í aðalhlutverki
Annað kvöld fer fjórði leikurinn um Íslandsmeistaratitilinn fram í Vestmannaeyjum. Strákarnir okkar eru komnir með bakið upp við vegg og verða að sigra til að knýja fram oddaleik. Við tókum fyrirliða liðanna í stutt viðtal og spurðum meðal annars út í rimmuna milli þessara liða.
Matthías Árni Ingimarsson fyrirliði Hauka
Hvernig hefur þér litist á rimmuna hingað til?
�?etta er búið að vera frábær rimma, hörku leikir og bæði lið gefið allt í þetta �?? alveg á hreinu.
Eru leikirnir eins og þú bjóst við?
Já, þegar þú ert kominn í úrslit um Íslandsmeistaratitilinn þá færðu hörku leiki, þetta er búið að vera eins og ég bjóst við. Tvö frábær lið sem enduðu í sætum 1 og 2 í deildarkeppninni. Liðin gera allt sem þau geta til að vinna dolluna.
Hvernig er að spila í Eyjum?
�?etta er alveg geggjuð stemmning, alveg frábært. Spila fyrir fullu íþróttahúsi á handboltaleik er eitthvað sem er alltaf gaman. �?að er stemmning allan tímann, stuðningsmennirnir hætta aldrei. Einnig er stuðningurinn frá Haukafólkinu sem við höfum fengið alveg frábær.
�?ín spá?
Vona að við tökum þetta, hef fulla trú að við getum það ef við spilum af fullum krafti í 60 mín. �?að þarf allt að ganga upp til þess.
Magnús Stefánsson, fyrirliði ÍBV
Hvernig hefur þér litist á rimmuna hingað til?
Liðið hefur átt mjög eftirminnilega úrslitakeppni fram að þessu þar sem fólkið okkar er í aðalhlutverkum. Við leikmenn höfum aldrei upplifað annað eins og held ég hreinlega að önnur eins stemmning og skemmtum hafi ekki átt sér stað á kappleik á íslandi áður. �?að eru forréttindi fyrir okkur að fá að vera á vellinum og sjá hvern einasta stuðningsmann klappa, stappa og syngja. Fólk er farið að gera sér ferð til eyja til að fá að �??upplifa stemmninguna sem allir eru að tala um.�??
Hefur tímabilið verið eins og þú bjóst við?
�?að er óhætt að segja að við höfum komið flest öllum nema okkur sjálfum að óvörum með því að enda í öðru sæti deildarinnar. �?að er engin bein uppskrift að þessari velgengni. Við höfum á að skipa gríðarlega hæfileikaríku liði þar sem allir gera sér grein fyrir sínu hlutverki og hver leikmaður skilar sínu 100%. �?að hefur verið góður stígandi í liðinu jafnt og þétt í allan vetur þar sem leikmenn, þjálfarar og liðið hefur bætt sig leik frá leik. Leikirnir í úrslitakeppninni hafa vissulega tekið sinn toll af leikmönnum sem e.t.v. kemur niður á gæðum leiksins en menn bæta það upp með mikilli baráttu og vilja og nýta sér ómetanlegan stuðning sem vind í seglin.
�?ín spá?
Nú eigum við í hörku seríu gegn sterku liði Hauka þar sem staðan er 2-1 fyrir þeim. Við trúum því samt sem áður allir að við séum að fara að taka næsta leik. Eftir þessa þrjá leiki höfum við séð að við erum einfaldlega með betra lið en þeir, betri stuðning, meiri karakter. Við þurfum bara að ná fram því sem lagt er upp með fyrir leik og þá höfum við verið að taka þessa sigra með áhorfendum okkar.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.