Mun meira fjallað um karlana en konurnar
Fyrirliði knattspyrnuliðs kvenna hjá ÍBV, �?órhildur �?lafsdóttir, hefur borið saman umfjöllun fjölmiðla um konur í knattspyrnu miðað við karla. Samkvæmt hennar niðurstöðu er umfjöllun um kvennaknattspyrnu 9,1% en 89,5% í karlaboltanum. �?etta kemur fram á Vísi.is en �?órhildur er nemi í íþróttafræði við tækni- og verkfræðideild í Háskólanum í Reykjavík og segir sárlega vanta fyrirmyndir fyrir stúlkur sem æfa fótbolta.
�??Ungar stelpur hafa byrjað í auknum mæli að æfa fótbolta en þær hætta margar á unglingsaldri. �?ær þurfa eldri knattspyrnukonur til að líta upp til og hafa einhverja stefnu. �?essi rannsókn staðfestir að það er vöntun á umfjöllun um konur í íþróttum,�?? segir �?órhildur í samtali við Vísi. Í rannsókninni var tölulegum upplýsingum á umfjöllun þriggja íslenskra vefmiðla safnað saman og síðan greindar. Vefmiðlarnir eru ruv.is, mbl.is og fotbolti.net. �?órhildur valdi eina viku sumarið 2013 til þess að greina upplýsingarnar. Fyrir utan það að umfjöllun um knattspyrnu karla væri mun meiri þá var hún almennt fjölbreyttari. Algengasta snið umfjöllunar kvenna var lítilleg samantekt úr leikjum þeirra. Einnig voru umfjallanir karla að meðaltali lengri hvort sem um ræddi í orðum, sekúndum eða fjölda mynda.
�??�?að þarf að skoða betur ástæður þessa en það fyrsta sem manni dettur í hug er áhugaleysi. Einn fjölmiðlamaður útskýrði þetta með því að leikirnir hjá konunum væru alltaf á sama tíma og því erfitt að fjalla um þá alla. Einnig var nefnt að samfélagið hefði ekki áhuga á að lesa um kvennabolta og hann væri ekki að skila eins miklu fjármagni inn,�?? segir �?órhildur og bætir við að með aukinni umfjöllun fjölmiðla gæti aukinn áhugi á knattspyrnu kvenna vaknað.

Nýjustu fréttir

Sterkt samfélag byggir á trausti og samvinnu
Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.