Kvennahlaup ÍSÍ er haldið í dag, laugardaginn 14. júní. �?etta er í 25. sinn sem Kvennahlaupið er haldið en hlaupið fer fram á 85 stöðum hérlendis og 20 stöðum erlendis. Kvennahlaupið hefur verið haldið í Vestmannaeyjum í mörg ár en hlaupið verður frá Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja klukkan 12:00 en vegalengdirnar sem eru í boði eru 2,2 km, 3,5 km og 7 km. Forskráning er í Íþróttamiðstöðinni en þátttökugjald er 1.500 kr. fyrir 13 ára og eldri og 1000 kr. fyrir 12 ára og yngri. Og auðvitað ráða allir hraðanum, hvort sé hlaupið, skokkað eða gengið.