Af biðlistum og Herjólfi
Á facebooksíðu sinni skrifar Sigurður Oddur Friðriksson um reynslu sína af löngum biðlista fyrir bíla um borð í Herjólfi. Hann skrifar: �??Er þetta fullbókaður Herjólfur. Vorum að koma með 13-ferðinni á mánudag 09.06 og hringdum til að athuga með far fyrir tjaldvagn en var tjáð af miðasölunni að skipið væri fullbókað og biðlistinn væri það langur að ekki tæki því fyrir okkur að skrifa okkur á hann. Síðan stóðst ég ekki mátið annað en að smella nokkrum myndum af “smekkfullu” skipinu Hvað er vandamálið ? Kann skrifstofufólkið ekki á tölvukerfið – Er fólk að hamstra ferðir og svindlar svo með því að afbóka og panta aftur án þess að greiða breytingargjald. Mér persónulega finnst þetta ekki fólki bjóðandi árið 2014. �?að getur ekki verið svo erfitt að vera með kerfi sem virkar. Eftir hvaða tölum er farið td. þegar talað er um þessar þvílíku aukningar ferðamanna með skipinu eru það raunverulega seldir miðar eða eru það pantanir sem aldrei eru seldar í raun. Sérstaklega núna yfir sumartímann þurfa þessir hlutir að vera í lagi, reynslan er komin á siglingar í Landeyjahöfn og því getur það ekki verið vandamálið.�??

Nýjustu fréttir

Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Landað í Grindavík og í Eyjum
Þarf vinnuskóli að vera vesen?
„Við erum að tala um 18 íbúðir, ekki eitt einbýlishús“
Veisla hjá Bjössa í 20 ár
Allir bæjarfulltrúar sameinast um kröfur til ríkisstjórnarinnar
TM mótið hefst á morgun
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.