�?að eru meiri líkur en minni að ÍBV eða Breiðablik vinni sinn fyrsta sigur í dag. Bæði lið eru án sigurs eftir sjö leiki í Pepsídeild karla og því mikið undir í dag. ÍBV hefur til þessa gert þrjú jafntefli en tapað fjórum leikjum en á sama tíma hefur Breiðablik gert fimm jafntefli en tapað tveimur leikjum. Bæði lið mega muna sinn fífil fegurri enda aðeins tvö ár síðan liðin tvö enduðu í öðru og þriðja sæti og fjögur ár síðan liðin tvö börðust um Íslandsmeistaratitilinn fram á síðustu sekúndu mótsins ásamt FH. Leikur liðanna hefst klukkan 17:00 og fer fram á Kópavogsvelli eins og áður sagði.