Jafnteflisliðin skildu jöfn
ÍBV gerði fjórða jafnteflið í Pepsídeildinni þegar liðið sótti Breiðablik heim. �?essi tvö lið eru því enn án sigurs en ekki án jafntefla því ÍBV hefur gert fjögur jafntefli það sem af er Íslandsmótsins og Breiðablik sex. Heimamenn í Breiðabliki komust yfir strax á 8. mínútu en Blikar voru sterkari aðilinn lengst af í leiknum. Eyjamenn unnu sig þó hægt og sígandi inni í leikinn og það var svo á 80. mínútu sem Jonathan Glenn nýtti sér varnarmistök Blika og jafna metin. Atli Fannar Jónsson átti svo síðasta orðið þegar hann átti hörkuskot að marki Blika undir lokin á sínum gamla heimavelli en boltinn fór rétt framhjá.
Eyjamenn sitja sem fyrr á botni deildarinnar, nú með fjögur stig. �?ór er í næst neðsta sæti en þeir gerðu jafntefli gegn FH í dag í Kaplakrika. Nú er þriðjungi lokið af Íslandsmótinu og engum blöðum um það að fletta að árangur ÍBV til þessa hefur verið vel undir væntingum. �?að er þó rétt að halda því til haga að liðið hefur ekki tapað síðustu fjórum leikjum sínum í deild og bikar. Eyjamenn verða hins vegar að fara ná í fyrsta sigurinn en næsti leikur ÍBV í deildinni er heimaleikur gegn KR sunnudaginn 22. júní. Fyrst tekur ÍBV þó á móti Val í 16 liða úrslitum Borgunarbikarsins og fer sá leikur fram miðvikudaginn 18. júní.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.