Guðjón Orri Sigurjónsson, markvörður ÍBV hefur fengið leyfi til að fara frá félaginu þegar félagsskiptaglugginn opnar 15. júlí næstkomandi. Guðjón Orri hefur aðeins spilað einn leik í sumar en fyrir tímabilið var talið að hann myndi yfirgefa ÍBV eftir að félagið samdi við hinn úganska Abel Dhaira, sem hefur verið markvörður númer eitt hjá liðinu í sumar. Abel byrjaði illa og Guðjón Orri fékk tækifæri í einum leik, í deildarleik gegn Víkingi en síðan var Abel aftur kominn á milli stanganna.
�??�?g er á þeim aldri að ég þarf að spila leiki til að bæta mig enn frekar sem markmaður og því fæ ég að ræða við aðra klúbba,” sagði Guðjón Orri við Fótbolta.net í gær.
Miklar umræður hafa verið um málið á spjallsvæði stuðningsmanna ÍBV á facebook og margir eru ósáttir við þetta útspil knattspyrnuráðs. Margir vonast hins vegar til þess að Guðjón Orri snúi svo tvíefldur til leiks hjá ÍBV og eigni sér markmannsstöðuna enda uppalinn Eyjapeyi.