Biðin eftir fyrsta sigri ÍBV í Íslandsmótinu ætlar að standa eitthvað fram á sumar. Í kvöld tapaði ÍBV fyrir KR á Hásteinsvelli 2:3 eftir að hafa komist tveimur mörkum yfir í fyrri hálfleik. Eyjamenn komust yfir í fyrri hálfleik 2:0 en KR-ingar náðu að minnka muninn í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Gestirnir voru svo mun sterkari í þeim síðari, sóttu nánast látlaust að marki ÍBV, sem beitti skyndisóknum. Eyjamenn stóðu af sér sóknir KR, allt þar til á 84. mínútu að þeim tókst að jafna metin og skora svo sigurmarkið fimm mínútum síðar en mörkin tvö voru keimlík. �?etta var níundi leikurinn í röð í Íslandsmótinu sem ÍBV tekst ekki að vinna.
KR-ingar byrjuðu betur í leiknum og voru sterkari fyrsta hálftímann. Eyjamenn gáfu hins vegar fá færi á sér og vörðust ágætlega en beittu skyndisóknum sem byggðust mest á því að senda langa bolta fram á Jonathan Glenn, sem nýtti ógnarhraða sinn til að skapa einhverja hættu. Eyjamenn náðu einnig að byggja upp eina og eina sókn og eftir eina slíka, kom Dean Martin boltanum fyrir markið þar sem Glenn var mættur og skallaði í netið. �?etta gerðist á 34. mínútu og sex mínútum síðar var staðan orðin 2:0. Annað markið gerði Víðir �?orvarðarson og það var sko af dýrari gerðinni, skot utan vítateigs sem fór af slánni, niður á marklínu og upp í þaknetið. Stórglæsilegt mark hjá Víði. Stuttu síðar áttu Eyjamenn svo að fá víti þegar Stefán Logi Magnússon, markvörður KR-inga felldi Glenn sem var sloppinn í gegn en �?orvaldur Árnason, dómari dæmdi ekkert, áhorfendum til mikillar furðu. Og þegar allt stefndi í að ÍBV myndi hafa tveggja marka forystu í hálfleik, skoruðu KR-ingar og héldu um leið voninni lifandi á að ná einhverju út úr leiknum.
Markið virtist virka sem vítamínsprauta á vesturbæjarliðið sem sótti stíft að marki ÍBV í seinni hálfleik. En sem fyrr tókst þeim illa að skapa sér opin færi og það var í raun ekki fyrr en þegar sex mínútur voru eftir að leiknum að þeim tókst loks að skapa færi og Kjartan Henry Finnbogason nýtti sér það. Ekki fyrsta mark Kjartans Henry gegn ÍBV. Og hann var ekki hættur því mínútu fyrir leikslok lagði hann upp sigurmark KR-inga þegar hann sendi á Gary Martin sem skoraði annað mark sitt í leiknum og þriðja mark KR-inga. Lokatölur 2:3 fyrir KR, svekkjandi tap eftir að hafa komist í góða stöðu í fyrri hálfleik.
Eyjamenn eru því sem límdir við botn deildarinnar, eru aðeins með fjögur stig eftir níu leiki og deginum ljósara að fallbarátta er hlutskipti ÍBV í sumar. �?að er sem álög eru á liðinu því ÍBV virðist ekki ætlað að vinna sigur, jafnvel eftir að hafa komist 2:0 yfir eða vera yfir þegar komið er fram í uppbótartíma, þá tekst andstæðingnum alltaf að setja strik í reikninginn. �?að eru mörg batamerki á leik Eyjaliðsins en betur má ef duga skal.
Næsti leikur verður erfiður en þá sækir ÍBV Keflavík heim en Keflvíkingar hafa verið sterkir í upphafi móts, eins og svo oft áður.