�?tgerðarfélagið Glófaxi ehf. í Vestmannaeyjum hélt nýlega upp á 40 ára afmæli félagsins. Í tilefni dagsins var öllu starfsfólki útgerðarinnar ásamt fjölskyldum þeirra og heimamönnum boðið í veglegt kaffi. Bergvin Oddsson einn eigandi félagsins minnist þess þegar útgerðarfélagið var stofnað en samkvæmt Bergvini hefur útgerðin ávallt verið fjölskyldufyrirtæki og allir sem komu að stofnun þess komu víðsvegar frá úr íslenskum sjávarútvegi. Frá þessu er sagt á heimasíðu LÍ�?.
Í dag er Glófaxi ehf. í eigu Bergvins, eiginkonu hans Maríu Friðriksdóttur og barna þeirra, Lúðvíks Bergvinssonar, Magneu Bergvinsdóttur og Haralds Bergvinssonar. Magnea Bergvinsdóttir er framkvæmdastjóri útgerðarinnar og starfa fjögur barnabörn Bergvins og Maríu hjá útgerðinni. Samkvæmt Bergvini byrjuðu barnabörnin að skera af netum ásamt öðrum verkefnum aðeins 10 til 12 ára gömul og læra þau því ung inn á útgerðina.
�??Auðvitað hafa verið skin og skúrir í gegnum árin og ekki hefur þetta ávallt verið dans á rósum,�?? segir Bergvin þegar hann er spurður hvernig reksturinn hefur gengið í gegnum árin. �??�?að var mikið lagt undir á sínum tíma til að láta allt ganga upp,�?? segir Bergvin í samtali á heimasíðu LÍ�?, en að sögn hans hefur gengið vel á seinni árum þar til veiðigjöldin komu til sögunnar. Aðspurður hvað þurfi að gera til að lifa svona lengi líkt og Glófaxi ehf. hefur gert segir Bergvin mikilvægt að kaupa kvóta og ná sér í meiri veiðiheimildir.
Á myndinni eru Magnea Bergvinsdóttir og Bergvin Oddsson.