Loksins, loksins kom sigurinn!
ÍBV náði loksins að vinna sinn fyrsta leik í Pepsídeild karla þegar liðið sótti Keflavík heim í Pepsídeildinni. �?etta var tíundi leikur Eyjamanna í deildinni en fram að þessu hafði liðið gert fjögur jafntefli en tapað fimm leikjum. Eftir arfaslaka byrjun í Íslandsmótinu hefur leikur Eyjaliðsins batnað mikið en heilladísirnar voru ekki á bandi ÍBV í nokkrum af síðustu leikjum, voru bara á móti ÍBV því ekkert gekk upp hjá Eyjaliðinu. En nú tókst það loksins, lokatölur í Keflavík voru 1:2 fyrir ÍBV sem er nú komið með sjö stig og ljóst að ÍBV er komið úr botnsætinu, í bili að minnsta kosti því þótt leik Breiðabliks og �?órs sé ekki lokið, mun annað hvort liðið sitja í botnsætinu eftir leiki kvöldsins.
Sigurinn í kvöld hlýtur að létta brúnina á leikmönnum, þjálfurum, forráðamönnum og ekki síst stuðningsmönnum ÍBV liðsins en brúnin hefur verið heldur þung eftir fyrstu níu leiki deildarinnar. Leikmenn hljóta einnig að fá aukið sjálfstraust eftir jafn góðan sigur og í kvöld en Keflavíkingar hafa byrjað tímabilið mjög vel og voru í þriðja sæti fyrir leiki kvöldsins. Keflvíkingar byrjuðu betur í leiknum og komust yfir með marki á síðstu mínútu fyrri hálfleiks, eftir að Eyjamenn höfðu verið sterkari í hálfleiknum. Fyrri hálfleikur var rólegur framan af en undir lokin sóttu Eyjamenn í sig veðrið og Víðir �?orvarðarson jafnaði metin á 85. mínútu eftir að markvörður Keflvíkinga hafði brotið á Atla Fannari Jónssyni. Eyjamenn hafa nokkrum sinnum tapað stigum með því að fá á sig mörk í uppbótartíma en í þetta sinn tókst Eyjamönnum að snúa dæminu við því Atli Fannar skoraði sigurmark ÍBV í uppbótartíma og tryggði Eyjamönnum sigurinn góða.

Nýjustu fréttir

Siglingar til Landeyjahafnar háðar kjöraðstæðum
Alanys semur við ÍBV til tveggja ára
Bein útsending: Staða ferðaþjónustunnar rædd við þingmenn
Skipulag við Strandveg 44 til bæjarstjórnar
Skjöldur í þriðja sinn 
Er verið að leggja landsbyggðarskatt á okkur?
Borkjarnar á fyrirhuguðu dýpi Eyjaganga betri en vænst var
Vilja vernda einstakt lífríki sunnan Íslands
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.