Fundað vegna friðarkerta
Eyjar.net greindi frá því í byrjun vikunnar að Hjálparstarf kirkjunnar hefði ákveðið að endurnýja ekki samning við Kertaverksmiðjuna Heimaey, sem í hartnær þrjá áratugi hefur framleitt kertin. Hjálparstarf kirkjunnar hefur ákveðið að hefja innflutning á pólskum kertum en á eyjar.net kemur fram að í þeim sé mun minna vax. Heimaey hefur til þessa framleitt rúm 30.000 friðarkerti á ári fyrir kirkjuna og því hefur þessi ákvörðun mikil áhrif á rekstur verksmiðjunnar. Bjarni Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar staðfesti þetta á Eyjar.net og sagði framleiðslukostnað á kertunum væri orðinn það hár að ekki væri lengur grundvöllur fyrir kaupunum. �??�?á sagði Bjarni að vandamál væri að fá blikksmiðju til að taka að sér framleiðslu á dósunum undir kertin. Ennfremur sagði hann að samkeppni í kertasölu hafi aukist til muna nú í seinni tíð sem gerðu hlutina enn erfiðari,�?? segir í fréttinni.
Á mbl.is segir svo í dag að framkvæmdastjórar kertaverksmiðjunnar og Hjálparstarfs kirkjunnar hafi rætt saman um málið. �??Hjálp­ar­starf­inu þykir leitt að upp­lýs­inga­gjöf til Heima­eyj­ar á stöðu mála og grund­völl­ur ákvörðunar um að flytja inn full­unn­in kerti árið 2013 hafi ekki verið sem skyldi. Heima­ey hefði viljað fá betri aðkomu og mögu­leika á að bjóða í full­unn­in Friðarljós,�?? seg­ir í til­kynn­ingu frá Hjálparstarfi kirkjunnar. Aðilar munu nú í sameiningu skoða þessi mál í fullri hreinskilni og ræða möguleikana á áframhaldandi samstarfi.

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.