Í kvöld fór fram leikur ÍBV og Fram þar sem ÍBV vann sannfærandi sigur á Fram 30-18. Framarar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins en þá vöknuðu Eyjamenn og náðu fljótlega forystunni og héldu henni út allan leikinn. ÍBV skelltu í lás þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður og áttu Framarar fá svör við góðri vörn Eyjamanna og skoraði ÍBV fjögur af fimm síðustu mörkum fyrri hálfleiksins og staðan var 13-8 fyrir ÍBV í hálfleik.
Framarar virtust ætla byrja seinni hálfleikinn af krafti en þeir skoruðu fyrstu þrjú mörkin og fór þá um marga í stúkunni en Eyjamenn náðu ekki að skora fyrr en sex mínútur voru liðnar af seinni hálfleik. Heimamenn gáfu þá í og skoruðu næstu sjö af átta mörkum leiksins og var það of stór biti fyrir Framara en þeir voru hálf andlausir í leiknum.
Ungir og efnilegir leikmenn ÍBV fengu svo að spreyta sig í lok leiksins og nýttu tækifærið vel og endaði leikurinn með tólf marka sigri ÍBV, 30-18.
ÍBV komst upp fyrir Hauka í 5. sæti deildarinnar með sigrinum.
Mörk ÍBV skoruðu þeir; Magnús Stefánsson 7, Theodór Sigurbjörnsson 6, Agnar Smári Jónsson 4, Guðni Ingvarsson 3, Grétar �?ór Eyþórsson 3, Hákon Daði Styrmisson 3, Einar Sverrisson 2, Magnús Karl Magnússon 1 og Svavar Kári Grétarsson 1.