Bonafide lögmenn opna í Vestmannaeyjum
�?ann 8.maí n.k. munu Bonafide lögmenn opna nýja starfsstöð í Vestmannaeyjum. Lögmannsstofan mun hafa aðsetur að Vesturvegi 10, en hún er fyrir á Klapparstíg 25-27 í Reykjavík. Stofnendur stofunnar, Lúðvík Bergvinsson og Sigurvin �?lafsson, eru báðir Vestmannaeyingar.
Lúðvík Bergvinsson, eigandi:
�??Við erum hæstánægð með að vera loksins að opna í Vestmannaeyjum, og hlökkum við Sigurvin mikið til að starfa á ný í okkar heimabæ. Með opnuninni í Eyjum skapast einnig ný staða fyrir háskólamenntaðan mann í sveitarfélaginu, sem okkur þykir einnig jákvæð viðbót�??
Við stofuna mun starfa einn staðbundinn starfsmaður, Aníta �?ðinsdóttir, en allir starfsmenn stofunnar í Reykjavík koma einnig að störfum þar. Aníta útskrifaðist með meistarapróf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2013. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum, og hefur frá útskrift starfað hjá Sýslumanninum í Kópavogi og Vestmannaeyjum, við almenn störf á lögfræðisviði.
Bonafide lögmenn er þjónustufyrirtæki sem fylgir umbjóðendum sínum allt þar til endanleg lausn finnst í viðkomandi máli. Starfsfólk stofunnar sinnir málaflokkum á öllum sviðum lögfræðinnar fyrir einstaklinga, fyrirtæki, opinberar stofnanir, sveitarfélög og erlenda aðila.
Opnunin í Vestmannaeyjum kemur í kjölfar aukinnar eflingar stofunnar. Má þar meðal annars nefna að um áramótin síðustu bættist Elín Hrefna �?lafsdóttir lögmaður í eigendahóp stofunnar. Elín er 26 ára gömul og útskrifaðist með meistarapróf í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2013 og hlaut lögmannsréttindi sín sama ár.

Nýjustu fréttir

Elís Þór framlengir við ÍBV til 2028
Tveir tapaðir mánuðir í upphafi sumars
Átta vilja verða tómstunda-, íþrótta- og forvarnarfulltrúi
Ekki hægt að bóka tíma hjá augnlækni í Eyjum
Læsti 130 milljóna Lottómiða inni í skáp
Formaður Sjálfstæðisflokksins á fundi í Ásgarði á morgun
ÍBV tapaði naumlega gegn HK í æsispennandi leik
Landsnet telur afhendingaröryggi í Eyjum mjög gott
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.