Gera – teikna – lita – mála. Hvaða hugrenningar vakna þegar listaverk eru skoðuð? Klæjar ykkur að prófa sjálf? Á sýningunni Stefnumót við safneign – listir·leikur·lærdómur, hefur gestum verið boðið að reyna sig með litum og nokkra sunnudaga hafa myndlistarkennarar verið þeim til aðstoðar. Ekki er krafist neins undirbúnings og litir og pappír eru á staðnum. Gestir eru hvattir til að láta myndir á sýningunni kveikja hugmyndir að nýjum verkum um leið og handbragð og efnistök eldri meistara eru skoðuð. Stund í Listasafninu getur verið góð samverustund fyrir fjölskylduna.
Listi yfir umsækjendur um starf slökkviliðsstjóra…
Fagmannakvöld í Miðstöðinni – frá þorrablóti til…
Vikan í Eyjum: Herjólfur, framkvæmdir við höfnina og…
Kveikjum neistann – Jákvæðar niðurstöður en…
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
Lúðrasveitin í landsliðsklassa – Kraftur, gleði og…