Karlmaður var í síðustu viku dæmdur í 90 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir ítrekuð brot í Vestmannaeyjum. Var hann meðal annars dæmdur fyrir líkamsárás gegn barni, hótanir, vopnaburð og umferðalagabrot. Gerði lögreglan upptæka öxi hjá manninum og sveðju. Segir í frétt frá Morgunblaðinu.
Maðurinn játaði brot sín skýlaust eins og þau voru sett fram í ákæru málsins. Þar segir meðal annars að hann hafi í janúar í fyrra veist að dreng og ýtt honum upp að flaggstöng og tekið um háls hans. Þá veitti hann drengnum eftirför og skellti honum í rúðu í útidyrahurð verslunar þannig að drengurinn fékk punktblæðingu og eymsli.
Þá var maðurinn einnig fundinn sekur um að hafa ógnað og hótað að drepa annan mann og var þá vopnaður stórri heimatilbúinni sveðju. Þegar lögregla gerði leit á heimili mannsins sama dag fannst sveðjan og öxi sem voru gerð upptæk.
Þá var maðurinn fundinn sekur um fjölda umferðalagabrota, allt frá því aka gegn akstursstefnu og yfir í að nota ekki öryggisbelti eða nota farsíma án handfrjáls búnaðar.
Hvað er sjóveiki?
Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.
Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.
Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.
Góð ráð til að hindra sjóveiki:
Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.
Önnur ráð:
Hvar í skipinu er best að vera o.fl.
Þungun:
Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.