Landeyjasundið - Straumar óhagstæðir og vegalengdin 15 km
Sundkappinn Jón Kristinn �?órsson náði landi á Landeyjasandi á sjöunda tímanum í morgun en hann hóf sundið frá Eiðinu í Vestmannaeyjum klukkan ellefu í gærkvöldi. Sundið tók sjö og hálfan tíma en stefnt hafði verið á að ná til Landeyjahafnar á fjórum tímum. Straumar reyndust óhagstæðir en vegalengdin er um 15 kílómetrar í stað 11. Frá þessu er greint á visir.is en eyjafrettir.is fylgdust með Jóni Kristni frá því hann hóf sundið og þar til hann náði landi.
Í samtali við visir.is í morgun segir Jón Kristinn: �??�?etta gekk brösulega en ég kláraði þetta. �?etta var erfiðara en ég bjóst við,�?? segir Jón Kristinn. Straumarnir hafi verið miklu meiri en hann hafi órað fyrir. Jón hafði rætt við menn sem hafa synt þessa leið og eftir þau samtöl reiknaði hann með fjórum tímum í sjónum. Hann velti fyrir sér að hætta við.
�??�?að hvarflaði að mér strax í byrjun þegar ég sá hve úfinn sjórinn var og straumarnir miklir. �?g ákvað samt að halda smá áfram og þetta batnaði aðeins,�?? segir Jón Kristinn sem starfar sem lögreglumaður og greinilega í góðu formi.
Ermasundið næst á dagskrá
Sjórinn var í kringum ellefu gráður að hans sögn en hann segist varla muna eftir augnablikinu þegar hann loks kom í land.
�??�?g man að ég kom í land en skildi strákana ekki alveg þegar þeir voru að tala við mig. Mér fannst þeir vera að tala útlensku við mig. Svo eftir heita sturtu kom þetta til baka.�??

Nýjustu fréttir

Elliði fyrir leikinn gegn Dönum
Spáð í spilin fyrir stórleikinn í kvöld á EM
Tíðarandi liðinna ára í myndum í Sagnheimum
Handbolti, loðnukvóti og prófkjör
Áskorun til Vestmannaeyinga 
Skipar sjö manna fagráð
Skráning stendur yfir í Lífshlaupið
Foreldrar Elliða stolt á leið til Danmerkur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.