Íslandsbanki varar við svikasímtölum
Mynd/Íslandsbanki

Íslandsbanki varar við svikasímtölum þar sem hringjendur þykjast vera starfsmenn bankans og biðja viðskiptavini um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Í tilkynningu frá bankanum kemur fram að borist hafi tilkynningar um slíkar svikatilraunir. Í símtölunum sé því haldið fram að grunsamleg virkni eða innskráning hafi átt sér stað í netbanka viðskiptavinar. Í kjölfarið sé viðkomandi beðinn um að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum.

Bankinn hvetur viðskiptavini til að samþykkja ekki óvæntar beiðnir um auðkenningu með rafrænum skilríkjum.

Þeir sem fá slík símtöl eru hvattir til að leggja á og hafa samband við Íslandsbanka í síma 440 4000 ef vafi leikur á hvort símtalið sé í raun frá bankanum.

Nýjustu fréttir

Uppselt á konukvöld handknattleiksdeildar ÍBV
Eyjarnar með um 100 tonn eftir stuttan túr
Andvari vill flýta umbótum í menntakerfinu 
N1 opnar hraðhleðslustöð í Eyjum – Herbert fyrstur til að hlaða
ASÍ skorar á stjórnvöld að falla frá breytingum á Loftbrú
Hugleiðingar varðandi umgengni og árangur í íþróttum
Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.