Ósambúðarhæfa kynslóðin
6. apríl, 2020

Því hefur verið fleygt fram í gamni – þó glöggt megi skynja beiskan og grámyglaðan undirtón – að tíðni skilnaða muni ná hámarki eftir Covid-19 ævintýri heimilanna. Ég er ein af þessum „heppnu“ sem þarf ekki að spá í þessu.

Heppnu – innan gæsalappa –  því ég gjóa oft með öfundaraugum á þá sem eru í samböndum.

Heppnu – án gæsalappa – því ég vil frekar vera ein heldur en að taka þátt í allri þessari gremju og fýlu og þögnum og öllum þessum ljótu athugasemdum sem ég sé svo oft fljúga á milli para.

Við leitum í sambönd af því að þau eiga að gera lífið betra. Þau eiga að láta okkur líða betur. Í það minnsta ættu sambönd að draga úr einmanaleika okkar en ekki auka á hann. Að auka lífsgæðin en ekki að draga úr þeim. Já, veistu, ég hef þá skoðun að sambönd ættu að einfalda lífið en ekki flækja það!

En við þarna sem erum í kringum fertugt virðumst vera kynslóðinn sem er ósambúðarhæf. Við erum kynslóðin sem leitar að tímabundnum hoppfélögum á Tinder af því að við nennum ekki einu sinni orðið að hafa fyrir því að fara á ball til að pikka upp eitthvað korter-í-þrjú dæmi.

Af því að það er frumþörf mannfólksins að tilheyra, vera elskuð og að elska, þá leitum við alltaf í einhverskonar sambönd. En af því að við erum orðin svo hrikalega slök í samskiptum og illa brennd þá viljum við þau samt ekki.

Við viljum nándina og innileikann, allt knúsið og hoppið og alla gleðina en við nennum ekki veseninu.

Og ég skil það vel því margt af því sem fólk er að upplifa er afskaplega raunverulegt og sársaukafullt vesen.

Það er fólk í kringum mig sem fær ekki að hitta börnin sín út af veseni við fyrrverandi maka.

Það er fólk í kringum mig sem þarf að velja á milli þess að hafa núverandi maka góðan eða að eiga í góðu sambandi við börn af fyrra sambandi.

það er fólk í kringum mig sem þarf að velja á milli þess að eiga í góðu sambandi við maka sinn eða fylgja draumunum sínum.

Það er fólk í kringum mig sem hefur verið sært svo djúpu hjartasári að það er aldrei nokkurn tímann að taka sénsinn á að hleypa nokkrum nógu nálægt sér aftur.

Kannski er ég barnalega einföld að halda að þetta þurfi ekki að vera svona. Að við þurfum ekki að vera í einhverjum haltu mér-slepptu mér leikjum eða láta eins og okkur sé alveg sama. Kannski er ég barnalega einföld að trúa enn á eitthvað happily-ever-after dæmi og láta ekki segjast þrátt fyrir að hafa verið brennd nokkrum sinnum á sömu bévítans hellunni.

Ég held nefnilega að rót vanda hinnar ósambúðarhæfu kynslóðar megi finna í þeirri löngun okkar að vilja hafa lífið vesenislaust en kannski umfram allt að lifa í þeirri barnslegu trú að það sé yfirhöfuð mögulegt.  Ég held að það hafi hreinlega gleymst að kenna kynslóðinni minni að takast á við vandamál og vesen svo við einfaldlega höfum náð að meistra vesenisforðum með stórglæstum hætti. 

Ég er sjálf með doktorsgráðu í að forðast vesen. Í gegnum tíðina þá hef ég flogið öfganna á milli; að vita ekki hvernig ég á að höndla tilfinningar þannig að ég  annað hvort lokað á fólk og hneykslast yfir enn einu dramakastinu eða dottið sjálf í tuð, óöryggi og að finnast ég þurfa að hafa alla góða í kringum mig. Við erum kynslóðin sem kann ekki að feta þennan margumtalaða gullna meðalveg.

En nú skal þessari gráðu hent í ruslið í eitt skipti fyrir öll. Ég er alltaf að sjá betur og betur hvernig það að forðast vesen hefur ekki hjálpað mér fyrir fimmeyring í neinum samböndum sem ég hef átt í hingað til. Gott ef það hefur bara ekki dregið mig lengra niður í skítinn og gert hlutina enn verri en áður.

Það sem ég hef líka séð er að öllum samböndum fylgir eitthvað vesen. Það skiptir ekki máli hvort það eru sambönd við maka eða mömmu eða systur eða börnin eða vini. Það fylgir öllum eitthvað vesen. Það virðist eitthvað tengjast því að fæðast sem manneskja. 

En veistu, vesenið snýst ekki um fólkið sjálft. Vesenið kemur eingöngu útfrá því að forðast eins og heitan eldinn að taka nauðsynleg vesenis-samtöl. Erfiðu samtölin. Leiðinlegu og óþægilegu samtölin. Að segja frá því sem skiptir mann máli. Hvar mörkin liggja. Hvað maður hræðist og hvað gerir mann óöruggann. Hvað særir, meiðir og móðgar. Hvað gleður og hvar viðkvæmir draumar liggja. Að taka nauðsynlegar umræður um peninga, börnin og fyrrverandi maka; um ósigra, mistök og vonbrigði lífsins. Þú veist. Venjuleg vesenis-samtöl.

Mig langar að segja þér sögu. Hetjusögu. Og ég er með leyfi til að segja hana, svo því sé haldið til haga. Fyrir þremur árum átti ég unglingakrútt sem var í kvíða og sjálfsskaða. Það var vesen. Veistu, það var bara drullu-djöfuls fokk vesen ef ég á að vera alveg heiðarleg. Ekki af því að hann var svona erfiður. Af því að ég þurfti að gera svo margt sem ég hafði aldrei gert áður. Ég þurfti að taka margar vesenis ákvarðanir og mörg vesenis samtöl. Ég þurfti að læra að hlusta á hans forsendum, ég þurfti að læra að standa með honum, ég þurfti að læra að setja mörk og ég þurfti að læra að tjá mig í allri þeirri mestu einlægni sem ég átti til, til að geta náð til hans. Þetta er það allra, allra erfiðasta verkefni sem ég hef nokkurn tíma tekist á við. En við komumst nokkuð heil í gegn – og lærðum á átakalega sársaukafullan hátt hversu skaðlegt það er að forðast vesen og erfið samtöl.

Þessi sami sonur segir svo oft við mig, segðu mér það bara, ég les ekki hugsanir! Svo nú ætla ég að taka hann til fyrirmyndar og segja mínum  nánustu hvað þau skipta mig miklu máli. Af því að enginn hefur lofað mér morgundeginum og lífið hefur svo sannarlega kennt mér að taka fólki ekki sem sjálfsögðum hlut.

Ég vona innilega að þú nennir smá veseni og gerir það sama fyrir þitt fólk heart

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst