ÍBV sigraði Selfoss
Eyja­kon­ur höfðu bet­ur gegn Sel­fyss­ing­um í Olís-deild kvenna í hand­knatt­leik í gær, 28:24. Mbl.is greindi frá.
Sig­ur­inn var mjög mik­il­væg­ur þar sem ÍBV sleit sig frá neðstu liðunum en Sel­foss hefði dregið Eyja­kon­ur í al­vöru fall­bar­áttu með sigri. �?ess í stað mun­ar sex stig­um þeirra á milli og er ÍBV aðeins tveim­ur stig­um frá Valskon­um sem eru í 4. sæti á meðan Sel­foss er enn í næst­neðsta sæti.
Staðan í hálfleik var 14:12 Eyja­kon­um í vil og unnu þær því báða hálfleika með tveggja marka mun. Landsliðskon­an Hrafn­hild­ur Hanna �?rast­ar­dótt­ir var marka­hæst Sel­fyss­inga með ell­efu mörk en Karólína Bæhrenz var at­kvæðamest Eyja­kvenna með níu mörk.
Marka­skor­ar­ar Sel­foss: Hrafn­hild­ur Hanna �?rast­ar­dótt­ir 11, Kristrún Steinþórs­dótt­ir 4, Dij­ana Radoj­evic 3, Adina Ghido­arca 3, Car­men Palam­ariu 2, Mar­grét Katrín Jóns­dótt­ir 1.
Marka­skor­ar­ar ÍBV: Karólína Bæhrenz 9, Sandra Erl­ings­dótt­ir 6, Greta Kavaliauskaité 5, Telma Am­ando 4, Kristrún �?sk Hlyns­dótt­ir 2, Sandra Dís Sig­urðardótt­ir 1, Ester �?skars­dótt­ir 1.

Nýjustu fréttir

Kvörtun um stöðu ferjusamgangna fékk ekki frekari meðferð
Uppfært: Herjólfur siglir til Þorlákshafnar
Minni makrílútflutningur vegur þungt í samdrætti septembermánaðar
Subsea7 viðurkennir mistök við útlagningu vatnslagnar
Fermetraverð í fjölbýli í Eyjum hækkað um 81%
Fjölbreytt októberblað með sérblaði um Kveikjum neistann
Lífshagsmunir gegn græðgishagsmunum
Fagnar skilaboðum ráðherra um varamótora
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.