SFS segir sjómenn víkjast undan ábyrgð: Samningsaðila að taka tillit hver til annars
�??Sjómannasamband Íslands, Sjómannafélag Íslands og VM Félag vélstjóra og málmtæknimanna tóku þá ákvörðun að slíta kjaraviðræðum við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) í dag. Vegna þeirra miklu hagsmuna sem samfélagið allt hefur af því að verkfall sjómanna taki enda, telur SFS ábyrgð verkalýðsfélaganna ríka. Sjómenn og sjávarútvegsfyrirtæki hafa falið samninganefndum að ná ásættanlegum kjarasamningi og undan því verkefni leysa aðilar sig ekki með því að ganga frá samningaborði,�?? segir í yfirlýsingu frá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) eftir að slitnaði upp úr samningaviðræðum samtakanna við sjómenn.
�??Í kjarasamningnum, líkt og samningum almennt, ber samningsaðilum að taka tillit hver til annars og huga að hverju því málefnalega sjónarmiði sem gagnaðili setur fram. Í kjaraviðræðum SFS og samtaka sjómanna, hvort heldur viðræðum í aðdraganda samninganna tveggja sem sjómenn felldu á liðnu ári eða í þeirri samningalotu sem samtök sjómanna hafa nú gengið frá, hefur SFS unnið í samræmi við þessa grunnreglu. Verkalýðsfélögin þrjú hafa fengið ríka áheyrn um allar þær kröfur sem þau hafa sett fram og ríkur vilji hefur verið af hálfu SFS til að koma til móts við margar þeirra.
Tillitið hefur ekki verið gagnkvæmt og verkalýðsfélögin hafa því miður ekki ljáð máls á málefnalegum sjónarmiðum SFS. �?að er miður að þau treysti sér ekki til að ræða allar hliðar kjaramála. Ljóst má vera að ógerlegt er að ganga að öllum kröfum þeirra,�?? segir í yfirlýsingunni.

Nýjustu fréttir

Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.