Lýðræði eða hvað

Nú eru þeir gengnir í salinn, kjörnir og ókjörnir þingmenn. Á fimmtudaginn eiga þeir að kjósa í eigin máli um klúðrið fyrir vestan. 

Þrisvar hefur hópur sem kallast kjörbréfanefnd farið á vettvang glæpsins til að telja og setja sig inn í atburðarás sem þegar er documenteruð af öryggismyndavélum. Ekki þótti ríkislögreglustjóra ástæða til þess að blanda sér í leikinn. Þó fannst lögreglustjóranum í umdæminu, væntanlega kunningja héraðsdómarans ástæða til að slá létt á rassinn á kjörstjórninni með sekt upp á heilar 200 þúsund krónur sem nefndarmenn aftóku með öllu að greiða því þeir hefðu ekkert af sér gert. Æjá, það eru fleiri en alþingismenn sem taka að sér að dæma í eigin máli þessa dagana. Þetta mál á eftir að kosta ríkissjóð hundruðir milljóna hvaða ákvörðun sem tekin verður.

Einn, tveir og fjórir

Klukkan 7 að morgni 26. september síðastliðinn las héraðsdómarinn og formaður kjörnefndar í norðvesturkjördæmi upp lokatölur. Kjósendur höfðu sagt hug sinn. Að lestri loknum yfirgaf formaðurinn salinn, óvarðann rétt eins og atkvæðin sem búið var að telja, opinn fyrir gestum og gangandi. Lúinn lagði hann eyrað á koddann eftir langa og stranga talninganótt vonandi með bros á vör.  Ekki varð svefninn langur, því þegar klukkuna vantaði mínútu í tólf þennan dag arkaði löglærður maðurinn aftur inn í salinn og eyddi þar hálftíma í að róta í atkvæðunum, vitandi það að frá þeim tíma sem hann yfirgaf staðinn og fram til þess tíma þegar aðrir kjörnefndarmenn og umboðsmenn framboða komu á staðinn voru lögbrot í gangi. En rök formannsins voru eftir að upp komst ,,Það er hefð fyrir að gera þetta svona. Svona hefur þetta alltaf verið gert hér.“

Við endurtalningu kom í ljós að ekki var allt sem skyldi og síðar þennan dag duttu fimm nýkjörnir þingmenn út og aðrir fimm tóku þeirra sæti.

Lýðræðið undir

Engin leið er að segja til um hvor talninginn var rétt þökk sé löglærðum formanni kjörstjórnar og héraðsdómara, Inga Tryggvasyni. ”Má maður ekki gera mistök” var það fyrsta sem formaðurinn knái lét út úr sér þegar sannleikurinn lá fyrir, orð sem væntanlega munu hljóma í réttarsölum þar sem hann vermir dómarasæti í framtíðinni. Orð sem hann hlýtur að þurfa að taka til greina eftir það sem á undan er gengið. Ingi nýtur fulls trausts dómsmálaráðherra, svo hlýtur að vera því frá henni hefur ekki komið ein einasta stuna þess efnis að hann njóti ekki hennar trausts. Þetta er nú landið sem við lifum í.

Undarlegast af öllu er að alþingi skuli þurfa að taka afstöðu í svo víðáttuvitlausu máli sem fjallar um það sjálft og þingsetu fólks sem þegar er komið með kjörbréf í hendur og telst því til þingmannasveitar landsins. Auðvitað væri réttast að hæstiréttur hefði málið í sínum höndum.

Ómarktækar kosningar

Báðar talningar eru ómarktækar. Lýðræðið snýst um ákvörðun kjósenda en ekki mat þingmanna. Með því að ákveða að láta síðari talninguna gilda er alþingi búið að hvítþvo lögbrot Inga.

Umkosning í kjördæminu getur breytt litrófi þingmanna á alþingi eins og það birtist í dag svo um munar, þingmanna sem hafa tekið lýðræðið í eigin hendur, takandi að sér að túlka vilja fólksins í norðvesturkjördæmi. Eina leiðin til þess að endurvekja traust fólksins í landinu á lýðæðinu er að kjósa aftur á öllu landinu.

Heill forseta vorum og fósturjörð… já eða svoleiðis.

 

Alfreð Alfreðsson

Nýjustu fréttir

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins komið til Eyja
Starfsmenn World Class vinna við lokafrágang
Gleðisprengjur sprungu með látum
Samgöngur til Eyja til umræðu á Alþingi í dag
Birna Berg – Íþróttamaður mánaðarins
Gleymum því ekki að það er ekki búið að laga neitt
Karlalið ÍBV tapaði gegn Víkingum
Herjólfur siglir til Landeyjahafnar síðdegis
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.